Moren.
Heimaey Ve 1 kom í fyrsta skipti til heimahafnar sl. þriðjudag. Alveg rosalega flott skip og öll aðstaða til fyrirmyndar. Var reyndar ekki við þegar hún kom en er búinn að líta á gripinn. Hamingjuóskir til Ísfélagsmanna. Stjórnarformaður Ísfélagsins skaut sig aðeins í fótinn í ræðu sinni við komu skipsins. Ætlar bara að selja skipið, nýkomið til landsins. Hátíðisdagur í bæ og þetta voru skilaboðin. Svo var kostum skipsins lýst og þar kom fram að þetta væri tæknivæddasta skip flotans og kæmi með verðmætasta hráefnið! En selja bara gripinn og ná sér í gamalt stöff í skipakirkjugörðunum í Evrópu. Útgerðarmenn fá ekki prik hjá mér fyrir svona málflutning. Segi ekki meir.
Þorsteinn kom í morgun með rúm 80 tonn, mest ýsu og Suðurey var líka með 60 tonn af karfa. Rauði herinn sem nú telur tvö skip, Vestmannaey og Bergey var líka í morgun. Báðir með eitthvað um 60-70 tonn, mest ýsu. Frár landaði í gær 60 tonnum mest lýsu.
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í morgun. Crystal Serenity heitir það og er 69.000 tonn. 250 metra langt og búið sex 10.000 hestafla vélum!
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 36250
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.