Moren.
Gullberg landaði í morgun 75 tonnum af blandi. Huginn og Kap eru að græja sig fyrir makrílblönduðu síldina.
Aðalfundur Jötuns verður á föstudaginn kl. 17 í Alþýðuhúsinu.
Venjuleg aðalfundarstörf og eitthvað í hárið á eftir. Mæta og taka afstöðu. Það eru kjarasamningar á næsta leiti, drengir.
Svo er sjómannahelgin líka framundan og ég hvet alla að taka þátt og mæta. Dagskráin liggur frammi í verslunum og kemur í Fréttum og Dagskránni
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll kæri ven. Því miður gleymi ég oft að "kíkja" við hérna hjá þér. En er alltaf ánægður með það sem ég sé. Mér kemur í hug þegar þú skrifar um að mæta vel vegna kjarasamninga. Mér hefur oft þótt það með endemum hvernig fólk í verkalýðsfélögum taka á þannig málum. Ég man einusinni eftir þegar é var háseti í fragtinni þá var óvenjulega mörg fragtskip inni í Rvíkurhöfn um jól. Stjórn Sjómannafélags R auglýsti fund milli háðtiðanna þar sem farið yrði yfir væntanlegar kröfur og beði um tillögur þessu varðandi. Til að gera langa sögu stutta mættum við 2 ásamt stjórninni. Þetta var nú allur áhuginn fyrir bættari kjörum. Mér hefur oft þótt þeir sem eru í forsvari fyrir félögum verða fyrir ómaklegri gagnrýni af, einmitt mönnum sem ekki skilja að félögin eru þeir sjálfir, Ég veit þú skilur hvað ég meina. Ég vona bara Valmundur að þér gangi vel í störfum þínum fyrir sjómenn og fáir þann stuðning frá þeim sem þú/þið(í stjórninni) þurfið Um leið og ég óska þér gleðilegs Sjómannadags kveð ég þig sem ávallt, kært
Ólafur Ragnarsson, 3.6.2010 kl. 20:41
Sæll félagi.
Satt er það Óli að menn verða að mæta til að tjá sig annars gerist ekkert nema væll í borðsalnum. Annars var ágætur hjá okkur fundurinn rúmlega 20 kallar mættu og það er sæmileg aðsókn miðað við undanfarin ár.
Kært kvaddur sem ávallt.
Valmundur Valmundsson, 7.6.2010 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.