Engin aska í dag.

Moren.

Nú er vestan gola og ekkert öskufjúk eins og í gær. En lífið heldur áfram og líflegt á bryggjunni í morgun. Þorsteinn var að landa tæpum 150 tonnum af úthafskarfa og er hættur. Fer á síld og makríl næstu daga. Frár með 30 tonn mest ýsu. Vídalín landaði 125 tonnum mest karfa og ufsa. Gullberg var í löndun veit ekki hve mikið þeir eru með en vafalaust gott. Gandí hinn nýi er hérna í einhverju havaríi. Svo kemur allur rauði herinn í dag og stoppar fram á laugardag eftir törnina sem búin er að vera á þeim. Dala Rafn landaði í gær.

Útgerðin hér í Eyjum flytur mikið út af óunnum fiski og hefur gert lengi. Menn reyna að miðla fiskinum þannig að hæsta verðið fáist hverju sinni. Ráðherra vor, Jón bóndi skelli útflutningsálagi á þá sem flytja út og bitnar það bæði á sjómönnum sem útgerðum. Má til sanns vegar færa að bæjarfélag eins og Vestmannaeyjar tapi miklum fjármunum á þessum gerningi ráðherra. Laun sjómanna lækka, tekjur útgerða einnig og þannig koll af kolli. Eins og nú er umhorfs í þjóðfélaginu veitir okkur ekki af þessum tekjum sem fara forgörðum vegna ranghugmynda stjórnvalda. Sjávarútvegurinn stendur undir þjóðfélaginu að miklu leiti. Höft og þúfnagangur stjórnvalda hafa valdið okkur miklum skaða. Þessu gerræði verður að linna ekki síðar en strax.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valmundur Valmundsson

Smá leiðrétting. Dala Rafn er búinn að vera stopp þessa vikuna í viðhaldi.

Valmundur Valmundsson, 27.5.2010 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband