Föstudagur í borginni.

Moren.

Er staddur í höfuðborginni í góðu yfirlæti. Ekki samt komist bryggjurúnt ennþá. Borgin er aðeins áningarstaður í dag. Leggjum í hann norður á Siglufjörð eftir hádegi. Þar tek ég púlsinn á útgerðinni og bæjarlífinu almennt. Langt síðan ég hef stoppað um tíma á Sigló. Einhverjar strandveiðar eru í gangi þar og verður fróðlegt að kynnast þeim í návígi.

Annars er allt gott úr Eyjum og flotinn landaði í gær og í dag, allir með góðan afla að mér er sagt. Ýsuveiði í Lónsbugtinni og þar í kring, mestallur trollflotinn er þar um slóðir. Gandí er með fyrsta alvöruhalið í morgun á kolmunna. Allt farið að snúast að sögn Guðna útgerðarstjóra VSV.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Valmundur, ég bíð spentur eftir fréttum af strandveiðum á Sigló ?

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.5.2010 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband