Færsluflokkur: Bloggar
Til hamingju með helgina sjómenn og fjölskyldur.
Friðarhöfnin klikkar ekki. Gott fjör og gaman. Krakkarnir að djöflast í höfninni. Kappróður, Drullusokkarnir með frábæra mótorhjólasýningu, hoppukastalar fyrir ungviðið, koddaslagur, rólan, netabæting þar sem austfirðingurinn Egill Guðna sigraði. Og Jötunn rúllaði upp kappróðrinum.. Stuðið í gærkvöld hjá Adda Johnsen var hreint út sagt frábært og ekki var rokkið í Höllinni af verri endanum. Í kvöld verður hátíð í Höllinni, 400 manns í mat og skemmtun og ball á eftir. Eitt af atriðum kvöldsins verður uppboð á tveimur ungum drengjum sem safnað hafa skeggi nokkuð lengi. Verða skegg þeirra skert í þágu góðs málefnis og nýtur Björgunarfélagið góðs af. Rakarinn góðkunni Viktor mun sjá um skeggskerðingu eftir að skeggin hafa verið boðin upp.
Meira á morgun.
Bloggar | 5.6.2010 | 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Moren.
Jæja nú byrjar fjörið góðir hálsar. Reyndar byrjaði "sjómannadagshelgin" í gær með bikarleik ÍBV og KR sem við töpuðum naumlega. Í kvöld opnar Finnur teiknikennari sýningu á olíu málverkum í Akóges, alltaf glæsilegt hjá Finni. Berglund Kristjáns opnar glerlistasýningu á morgun. Svo eru menn byrjaðir að æfa kappróðurinn á fullu og komin eru nokkur lið í fótboltann á morgun. Hvet alla Vestmannaeyinga til þáttöku í hátíðahöldunum.
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja er komið út undir styrkri stjórn Júlla Inga. Vandað að venju. Fimmti flokkur ÍBV mun sjá um sölu á blaðinu og Frjálsíþrótta Ægir félagið um sölu á merkjunum. Það eru margir sem safna hvoru tveggja.
Annars er það að frétta að Drangavík landaði í morgun fullfermi um 60 tonnum. Vestmannaey með sama 60 tonn og Dala Rafn með 50 tonn. Brynjólfur var líka í landi. Vídalín landaði í gær um 80 tonnum.
Bloggar | 3.6.2010 | 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Moren.
Gullberg landaði í morgun 75 tonnum af blandi. Huginn og Kap eru að græja sig fyrir makrílblönduðu síldina.
Aðalfundur Jötuns verður á föstudaginn kl. 17 í Alþýðuhúsinu.
Venjuleg aðalfundarstörf og eitthvað í hárið á eftir. Mæta og taka afstöðu. Það eru kjarasamningar á næsta leiti, drengir.
Svo er sjómannahelgin líka framundan og ég hvet alla að taka þátt og mæta. Dagskráin liggur frammi í verslunum og kemur í Fréttum og Dagskránni
Bloggar | 1.6.2010 | 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kvöldið.
Jæja þá er komið logn eftir kosningastrekking undanfarinna daga. Fór rúnt í nótt á kosningavökur V og D listanna. Menn bara nokkuð sáttir held ég og andinn var svipaður á báðum stöðum. Töluvert fleiri voru í Ásgarði heldur en í Eyjabúð. Stærstu tíðindin eru auðvitað sigur Jóns Gnarr í borginni og þar stendur grínarinn með pálmann í höndunum og ræður hverja hann tekur með í grínið. Sá í fréttunum áðan að hann hefði rætt við Dag Eggerts um meirihlutasamstarf. Þó spurði Gnarrinn hvort ekki væri til eitthvað annað en meiri- og minnihluti. Auðvitað er það til, allir vinna saman, en varla gengur það í borginni. Þar nuddast flokkarnir gömlu of mikið saman.
En hér er allt í góðu ÍBV gerði jafntefli 1-1, við Breiðablik í dag og áttu Eyjapeyjarnir skilið að vinna leikinn, fengu miklu fleiri færi en gestirnir. Gandí er að verða tilbúinn á síldina og fer á morgun að prufa held ég. Annars er lítið að frétta af miðunum þó er ufsaveiði á Mýró og þorskur allstaðar. Nema hvað.
Bloggar | 30.5.2010 | 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Moren.
Nú er vestan gola og ekkert öskufjúk eins og í gær. En lífið heldur áfram og líflegt á bryggjunni í morgun. Þorsteinn var að landa tæpum 150 tonnum af úthafskarfa og er hættur. Fer á síld og makríl næstu daga. Frár með 30 tonn mest ýsu. Vídalín landaði 125 tonnum mest karfa og ufsa. Gullberg var í löndun veit ekki hve mikið þeir eru með en vafalaust gott. Gandí hinn nýi er hérna í einhverju havaríi. Svo kemur allur rauði herinn í dag og stoppar fram á laugardag eftir törnina sem búin er að vera á þeim. Dala Rafn landaði í gær.
Útgerðin hér í Eyjum flytur mikið út af óunnum fiski og hefur gert lengi. Menn reyna að miðla fiskinum þannig að hæsta verðið fáist hverju sinni. Ráðherra vor, Jón bóndi skelli útflutningsálagi á þá sem flytja út og bitnar það bæði á sjómönnum sem útgerðum. Má til sanns vegar færa að bæjarfélag eins og Vestmannaeyjar tapi miklum fjármunum á þessum gerningi ráðherra. Laun sjómanna lækka, tekjur útgerða einnig og þannig koll af kolli. Eins og nú er umhorfs í þjóðfélaginu veitir okkur ekki af þessum tekjum sem fara forgörðum vegna ranghugmynda stjórnvalda. Sjávarútvegurinn stendur undir þjóðfélaginu að miklu leiti. Höft og þúfnagangur stjórnvalda hafa valdið okkur miklum skaða. Þessu gerræði verður að linna ekki síðar en strax.
Bloggar | 27.5.2010 | 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Góða kveldið.
Nú hafa allir stormað í sjónvarpssalinn í Herjólfi til að sjá tröllkonuna Heru, syngja lag með frönsku viðlagi og enskum texta í Osló, hef ég hinn salinn fyrir mig og ekkert ónæði. Er júróhatari númer eitt á Íslandi.
En, var norður á Sigló um helgina í góðu yfirlæti. Fór í tvær fermingar og veislur á eftir. Veðrið var gott en kalt, lofthitinn varla nema 6-7 gráður en sólin skein á laugardaginn og í gær og bætti kuldann upp ef maður var í skjóli fyrir norðan golunni. Eitthvað er um að stundaðar séu strandveiðar á Siglufirði en menn varla byrjaðir ennþá. Allir sótraftar á flot dregnir og allt uppí áttræðir kallar eru að róa til fiskjar á misgóðum skipum. Tíminn sem þeir fá þessa 4 daga í viku sem róa má er 14 tímar á hverjum degi og segir sig sjálft að ekki komast menn langt til miða á þeim tíma. Þá fara menn að slíta upp þaraþyrskling og alls kyns óværu grálúsuga, ormafull kvikindi og eitthvað þaðan af verra. Þetta er rómantíkin við strandveiðarnar. 6000 þorskígildi skulu fara í þennan leik og það er tekið af þeim sem sannanlega hafa vinnu við að vera sjómenn. Sveiattan.
Gaman að verða vitni af opnun Rauðku hf á Hannes Boy café á laugardaginn. Afskaplega vandað til allra verka og fallegt hús í alla staði og Rauðkumenn eru hvergi nærri hættir uppbyggingu gamalla hjalla á Siglufirði. Brenndu Sunnubrakkann til kaldra kola og ætla að byggja hótel þar sem hann stóð við bátahöfnina. Svæðið er glæsilegt og Rauðkumenn fá rós í hnappagatið hjá mér.
Bloggar | 25.5.2010 | 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Moren.
Er staddur í höfuðborginni í góðu yfirlæti. Ekki samt komist bryggjurúnt ennþá. Borgin er aðeins áningarstaður í dag. Leggjum í hann norður á Siglufjörð eftir hádegi. Þar tek ég púlsinn á útgerðinni og bæjarlífinu almennt. Langt síðan ég hef stoppað um tíma á Sigló. Einhverjar strandveiðar eru í gangi þar og verður fróðlegt að kynnast þeim í návígi.
Annars er allt gott úr Eyjum og flotinn landaði í gær og í dag, allir með góðan afla að mér er sagt. Ýsuveiði í Lónsbugtinni og þar í kring, mestallur trollflotinn er þar um slóðir. Gandí er með fyrsta alvöruhalið í morgun á kolmunna. Allt farið að snúast að sögn Guðna útgerðarstjóra VSV.
Bloggar | 21.5.2010 | 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Moren.
Jæja nú er búið að þrífa heilmikið og svo eru skúrir og ekki fýkur askan þá. Allir hangandi utaná þakrennum og með vatnsslöngur að skola burt ógeðinu. En mig rennir í grun að við séum ekki búin að bíta úr nálinni með þetta. Þegar þornar aftur þá rykast allt upp aftur. En hvað um það.
Gullberg landaði í gær fullfermi um 80 tonn. Vídalín landaði í morgun rúmum 100 tonnum mest karfa og ufsa. Frár með 55 tonn, ýsa. Dala Rafn með 65 tonn mest ýsa. Brynjólfur með 90 kör af heilum humri og eitthvað af fiski. Gandí fór í prufutúr í morgun. Svo er Þorsteinn að landa 140 tonnum af úthafskarfa sem þeir fengu í fimm hölum, góðir.
Nú stefni ég á norðurlandið á minn ástkæra Siglufjörð og mun ég athuga með útgerðina þar og aflabrögð.
Bloggar | 19.5.2010 | 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Moren. Smáey landaði í nótt tæpum 60 tonnum mest ýsa úr Lónsbugtinni. Bergey og Vestmannaey koma seinna í dag af sama svæði með fullfermi af ýsu eða um 70 tonn hvor. suðurey landaði í morgun 70 tonnum mest ýsa. Drangavík landar á Eskifirði í dag eða morgun fullfermi af ýsu. Svo er Frár litli að kroppa ýsu á Álseynni.
Bloggar | 17.5.2010 | 12:27 (breytt kl. 12:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Moren.
Við hjónin ásamt nokkrum vinum brugðum okkur á tónleika Tríkot og Lúðró í gærkvöld. Og hvílík skemmtun. 600 til 700 manns í salnum og ekki hægt að setja loftræstinguna á vegna öskunnar. En allir brosandi eyrna á milli. Lagavalið var mjög fjölbreytt frá Mozart til U2 og allt þar á milli. Nokkrir gestasöngvarar komu fram. Systurnar Jórunn og Arndís, Guðrún Gunnars, Tóti maður, og nokkrir aðrir. Blússandi fjör og sveitirnar klappaðar þrisvar upp. Lúðró er fyrirbæri útaf fyrir sig. Lúðrasveit Vestmannaeyja ásamt hluta af Lúðrasveit Verkalýðsins og Lúðrasveit Reykjavíkur. Og hvílíkir tónar, hvergi feilpúst, þéttleikinn og spilagleðin allsráðandi. Obbi stjórnandi góður að vanda og Tríkotararnir eru alltaf að verða betri og betri. Í hléinu hitti ég nokkra blásara úr Reykjavíkursveitunum og þeir voru orðlausir yfir mætingunni. Þennan viðburð verður eiginlega að flytja á fastalandið og leyfa fleirum að njóta.
Takk fyrir frábæra kvöldstund Tríkot og Lúðró.
Bloggar | 16.5.2010 | 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar