Sjómannadagur nálgast.

Moren.

Sjómannadagurinn nálgast óðum. Einungis rúm vika í hann. Hér í Eyjum verður mikið um að vera eins og venjulega.

Föstudaginn 1 júní er sjóaragolfmót, knattspyrna og minningarleikur um Steina Jó heitinn. Þar etja kappi gamlir félagar Steina úr ÍBV og Fylki. Svo verður rokk í Höllinni um kvöldið. Tyrkja Gudda með alla bestu rokkara landsins innanborðs. Og auðvitað Addi Johnsen í Akóges.

Á laugardeginum byrjum við á Básaskersbryggju kl 13:00 með sjómannafjör. Kappróður og leiki. Erum í samvinnu við bæinn sem er að gera veglegt torg austan við Kaffi Kró. Sem er að verða tilbúið. Endum þar á útitónleikum Foreign Monkeys.

Í Höllinni um kvöldið verður frábær dagskrá. Matur að hætti Einsa Kalda. Skemmtiatriði sem enginn vill missa af og ball með Brimnes á eftir. Veislustjóri verður landabruggarinn Gísli Einarsson.

Sjómannadagurinn sjálfur verður með hefðbundnu sniði. Messa, Stakkó þar sem aldnir sæúlfar verða heiðraðir og margt fleira. Dagskráin mun liggja frammi í matvörubúðunum næsta þriðjudag.

Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 2012 er helgaður minningu Sigmunds Jóhannssonar, þess mæta manns sem sjómenn eiga svo margt að þakka.

Blessuð sé minning Sigmunds. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Valmundur og takk fyri þennann pistil um Sjómannadaginn, mér lýst vel á að hafa hátíðarhöldin á Básaskersbryggju þar sem þau voru í mörg ár. Það er líka frábært hjá ykkur að helga daginn Sigmund Jóhannssyni, fáir hafa gert eins mikið fyrir sjómenn og Sigmund.

Kær kveðja 

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 30.5.2012 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband